Framleiðsla

Gæði og góð þjónusta eru þau atriði sem við leggjum helsta áherslu á í framleiðslunni. 

Við fáum prufur af öllu kaffi áður en stórar sendingar fara af stað til okkar. 
Prufurnar eru brenndar og smakkaðar, það er ekki fyrr en sérfræðingar okkar hafa gefið grænt ljós að gámar eru sendir af stað til Íslands. 

Um leið og þeir eru komnir í hús er aftur tekin prufa úr sendingunni, hún brennd og smökkuð áður en farið er að vinna úr hráefninu. 

Með þessu móti reynum við að tryggja að gæðin séu ávallt þau sömu. 

Við berum virðingu fyrir viðskiptavinum okkar og viljum þjóna þeim á sem bestan hátt. Jafnframt reynum við eftir fremsta megni að búa svo um hnútana að hann njóti ávallt bestu kjaranna og fái kaffið sitt á sanngjörnu verði.