Kaffilögun

KAFFILÖGUN

Fjórar vinsælustu aðferðirnar til að laga kaffi. Nota hrein áhöld,
gott kaffi og hreint vatn

KETILKAFFI

Vatn sett í ketil eða pott, grófmalað kaffi sett út í og látið sjóða. Þessi aðferð er gjarnan gerð yfir opnum eldi.

FILTERKAFFI

Pappírsfilter er komið fyrir í trekt eða könnu og kaffiduftið sett í , heitt vatn látið renna í gegn. 
Lögunartími á 1 líter ca 4,5-5 mín. Passa vel að vatnið sem fer yfir kaffiduftið sé 92-96° heitt og
kaffið má ekki standa lengi á hita eða í hitabrúsum.

PRESSUKÖNNUKAFFI

Heitt vatn sett í pressukönnu og kaffiduftið hellt út í og látið standa í ca 5 mínútur , síðan er 
síunni þrýst niður í könnuna.

ESPRESSO KAFFI

Lagað í sérstökum kaffivélum með þrýstingi (9loftþ.) lögunartíminn er ca 25 sek. Rétt magn 6.5-7g pr bolla (0,4-0,5 dl), 
einnig er miklilvægt að mala kaffið rétt því ef kaffið er og gróft þá verður froðan ójöfn, ef mölunin á kaffinu er of mikil þá verður froðan lítil og dökk. Malið ekki meira en þörf er fyrir og ekki geyma malað kaffi til næsta dags.

ALMENNT

Notið hrein áhöld og ferskt vatn
Notið rétt magn af kaffi (50-60 g pr. L)
Rétt hitastig 92-96°
Kaffið má ekki standa lengi