Rúbín Jólakaffi baunir 400gr Vörunúmer: KBR-12741 Gæðakaffi sérvalið frá Afríku og Suður-Ameríku. Þessi blanda er meðalbrennd sem gefur góða sætu og fína fyllingu sem nær fram góðu jafnvægi og ætti að höfða til sem flestra. Ilmurinn af nýlöguðu kaffinu minnir á súkkulaði og sítrus ávexti. Kaffið er gott eitt og sér og sem eftirréttarkaffi en einnig frábært með kökum og sætmeti. Kaffið er framleitt fyrir hver jól í takmörkuðu magni við miklar vinsældir.